Já það er kannski kominn tími til að blogga!!
Nú er Ægir minn kominn heim af sjó! Hann kom heim á laugardaginn (
8. júlí), ég fór í Þorlákshöfn til að sækja piltinn, shjat var gott
að fá knús frá honum!

Það er bara gott að hann sé kominn
heim!
Helgina 30.-2. júlí þá gerði ég nú ýmislegt. Á föstudeginum þá var
ég auðvitað að vinna! Um kvöldið þá kíkti ég aðeins á rúntinn en
var ekkert lengi því að það voru svo fáir á rúntinum og ég var líka
að fara að vinna upp í sjoppu daginn eftir!
Á laugardeginum þá var ágætt að gera í sjoppunni, það hefði alveg
mátt vera meira að gera sko, en veðrið var reyndar ekki sem best!
Eftir vinnu þá fór ég, Gunndís og Abby í bíó og við fórum á myndina
Click sem er bara góð sko! Mæli með henni

En það var ýmist hlegið
eða grátið á þeirri mynd... hehe.... Eftir bíóið þá keyrði ég þær
heim og keyrði svo mömmu heim en hún var hjá Röggu á meðan við
vorum í bíói! Eftir að ég var búin að skutla henni heim þá fór ég
aftur á Selfoss en strákarnir fengum mig til að vera driver fyrir
þá en þeir voru að fara á ball í Úthlíð! Og minns fékk að keyra
GEGGJAÐANN Trans am sem Dabbi K á! Shjat var það gaman

Þeir sem
voru með mér í bíl voru semsagt Dabbi K, Dabbi Adams og Orri! Eftir
ballið var farið á Selfoss og heim til Dabba Adams í partý og
strákarnir voru svo svangir að þeir fóru bara að grilla pulsur
klukkan 4 um morguninn! hehe Ég skutlaði svo Orra heim og fór svo
sjálf heim að sofa því að ég var að vinna daginn eftir! Á
sunnudeginum var ekkert að gera í sjoppunni! En eftir vinnu þá fór
ég beint heim í sturtu og að sofa því að ég var BARA þreytt!
Helgin 7.-9. júlí...
Á föstudeginum þá hættum við snemma að vinna sem var fínt! Eftir
vinnu þá fór ég í klippingu og litun!!!! Oooog hárið á mér er
BLEIKT:/ hehe nei smá djók það er nú bara dökkt eins og vanalega
með ljósum strípum!Þegar ég kom svo heim þá var ég send út á tún að
snúa!!!

Um kvöldið þá fór ég og Sigga Gella á Selfoss en ég
fór til að sækja Lúxann hans Ægis!!! Og auðvitað var tekin smá
rúntur á þessum svakalega bíl

Algjörar gellur sko... hehe
Já eins og ég sagði hér fyrir ofan þá fór ég og sótti kjellin sem
kom siglandi heim með Herjólfi! Þegar við komum á Selfoss þá fórum
við að leita að afmælisgjöf handa Einari en hann átti afmæli 8.
júlí! Fundum eitthvað kubbadót og einhver spil sem hann er að
safna! Síðan fór hann heim í sturtu og svo var bara brunað heim í
afmæli! Um kvöldið þá fórum við á Selfoss og Ægir fór að þrífa
bílinn sinn og svo fórum við bara að sofa!
Á sunnudeginum fór ég svo heim að ganga frá endum sem ég kláraði
ekki að gera

Nennti ekki alltaf að fara á milli sömu stæðna aftur
og aftur þannig að ég kláraði það bara um kvöldið með hjálp frá
kallinum! Ég fór svo á Selfoss og kíkti í afmæliskaffi hjá
Gunndísi! Eftir það þá fór ég og sótti bílinn minn en Ægir var að
þrífa hann á meðan ég var í afmælinu!!!! BARA duglegur
pilturinn!

:* Síðan fór ég upp á Toyota sem tók dágóðan tíma því
að það var bara geggjuð röð út úr Selfossi á leið í bæinn! Síðan
var farið heim að borða!
Í gær eftir vinnu þá keyrði ég Ægi á Selfoss en hann var að fara í
klippingu enda komin með svoldið mikið hár! hehe... Á meðan þá var
ég bara að rúnta og versla og eitthvað! Fórum svo í mat heim til
hans og eftir það þá brunaði ég upp í sveit og svo aftur á
Selfoss!!! brjálað að gera hjá mér sko!!! En þegar ég kom aftur á
Selfoss þá var rúntað aðeins og svo var farið út á Icecool
verkstæði en feðgarnir fóru og sóttu tofærubílinn en Gunni er að
fara að keppa um helgina á Hellu!!!! Nagli og Trukkurinn voru þarna
líka að hjálpa þeim að græja bílinn!! En svo nennti ég ekki að vera
þarna lengur þannig að ég fór bara heim til Ægis að sofa og svo
vaknaði maður auðvitað þegar kjellinn kom og hann þurfti auðvitað
að vekja mig!!! heheheh...
Í dag þá var grenjandi rigning en það var svosem ágætt að vera úti
að vinna fyrir utan það að ég hélt að puttarnir myndu detta af mér
í eitt skiptið því að mér var bara kalt á höndunum!!! En auðvitað
reddaði maður því!!! En annars þá er ég bara búin að vera löt síðan
ég kom heim úr vinnunni!!!!
Jájá ég held að þetta sé bara komið gott held ég!!! Skil ef fólk
nennir ekki að lesa þessa löngu ritgerð hjá mér!!!



hehehe...
Sjáumst!!! **kisss kisss****
Kv Helga